Notuð úr - umboðssala
Vinsamlega athugið! Hér er aðeins sýndur hluti þeirra notuðu úra sem eru til sölu hjá Michelsen úrsmiðum.
Michelsen úrsmiðir selja í umboðssölu notuð úr fyrir eigendur úranna.
Breytilegt er á hverjum tíma hvað er í boði af notuðum úrum, en sem dæmi um merki sem við höfum selt í umboðssölu er Rolex, Patek Phillippe, Tag Hauer, Omega, Breitling, Cartier, Movado og IWC.
Michelsen úrsmiðir eru milliaðili milli seljanda og kaupanda og bera ekki ábyrgð á viðskiptunum eða ástandi úranna. Við ráðleggjum kaupendum að skoða hlutina vel fyrir kaup eða kaupa ástandsskoðun á úrinu af Michelsen úrsmiðum.



