Arne Jacobsen Watch (by Rosendahl)
Þegar minnst er á danska arkitektinn og hönnuðinn Arne Jacobsen (1902-1971) koma strax upp í hugann hlutir eins og Eggið, Svanurinn, Sjöan, Maurinn og fjöldi annarra einstakra muna meistarans.
Árið 1942 hannaði Arne Jacobsen Roman veggklukkuna fyrir ráðhúsið í Aarhus, árið 1956 fylgdi í kjölfarið hönnun á City Hall veggklukkunni fyrir ráðhúsið í Rødovre. Fimmtan árum síðar hannaði Arna Jacobsen svo Bankers veggklukkuna fyrir Seðlabanka Danmerkur.
Í dag eru þessar klukkur vel þekkt tákn fyrir húsin sem þær eru í og eru til marks um framsækna hönnun Arne Jacobsen.
Árið 2009 endurskapaði hönnunarteymi Rosendahl þessar þekktu klukkur Arne Jacobsen sem armbandsúr með fullu samþykki og í samvinnu við afkomendur hans. Markmiðið var að fanga þann anda sem Arne Jacobsen lagði í hönnun sína. Afraksturinn er Arne Jacobsen Watch frá Rosendahl.




